Þjóðarsáttmáli um læsi - Samningur ríkis og sveitarfélaga. Benedikt Benediktsson varaoddviti Rangárþings eystra undirritaði samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.

Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra staðfesti s.k. þjóðarsáttmála um læsi með fulltrúum 7 sveitarfélaga við táknræna athöfn í Odda í gær 14. september 2015. Um er að ræða átak á landsvísu til að auka lestrargetu og lesskilning barna og unglinga. Sveitarfélögin sem tóku þátt í Odda í morgun eru Skaftárhreppur, Mýrdalshreppur, Rangárþing eystra, Rangárþing ytra, Ásahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur og Hrunamannahreppur.

 Markmið sáttmálans er að öll börn geti við lok grunnskóla lesið sér til gagns. Verkefnið er hluti af aðgerðaáætlun í kjölfar Hvítbókar um umbætur í menntun. Framlag ráðuneytisins verður í formi ráðgjafar, stuðnings, lesskimunar og aukins samstarfs við foreldra. Nánar má lesa um þetta á heimasíðu menntamálaráðuneytisins.

Á myndinni eru frá vinstri: Kristófer Tómasson sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Hrefna Sigurjónsdóttir framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, Ragnar Magnússon oddviti Hrunamannahreppi, Nanna Jónsdóttir sveitarstjóri Ásahreppi, Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra, Benedikt Benediktsson varaoddviti Rangárþings eystra, Sandra Brá Jóhannsdóttir sveitarstjóri Skaftárhrepps, Ásgeir Magnússon sveitarstjóri Mýrdalshrepps, og Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri Rangárþings ytra.