Sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykkti fjárhagsáætlun sína fyrir árin 2022-2025 á fundi sveitarstjórnar þann 9. Desember.

 

Áætlaðar heildartekjur Rangárþings eystra 2022, aðalsjóðs, A- og B hluta, nema alls 2.269 m. kr. Heildarútgjöld án fjármagnsliða eru áætluð 2.078 m.kr. Reiknaðar afskriftir 126 m.kr. Veltufé frá rekstri 166 m.kr.

Niðurstaða ársins 2022 án fjármagnsliða er áætluð 65 m. kr. Rekstrarniðurstaða 2022 jákvæð um 4 m.kr.

Áætlun 2022 gerir ráð fyrir fjárfestingum að heildarupphæð 840.000.000 kr. vegur þar þyngst bygging nýs leikskóla. Ger er ráð fyrir lántöku að upphæð 700.000.000, veltufé frá rekstri verði 166 milljónir og afborganir langtímalána 73 milljónir. Gert er ráð fyrir að skuldaviðmið skv. sveitarstjórnarlögum verður 60% í lok árs.

Hér má skoða greinargerð með fjárhagsáætluninni og fjárhagsáætlunina sjálfa má finna hér