Ísólfur Gylfi, sveitarstjóri Rangárþings eystra, heimsótti litlu nýársstúlkuna og fjölskyldu hennar sem að búa á Hvolsvelli. Stúlkan er dóttir þeirra Berglindar Hákonardóttur og Einars Viðars Viðarssonar og á hún tvö systkini, Hákon Kára sem að er 8 ára og Védísi Ösp sem að er 4 ára. Ísólfur færði fjölskyldunni blómvönd og árskort í sund frá sveitarstjórninni og að sjálfsögðu hamingjuóskir með fyrsta barn ársins.

null