Anton Kári Halldórsson og Lilja Einarsdóttir
Anton Kári Halldórsson og Lilja Einarsdóttir

Lilja Einarsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri Rangárþings eystra frá og með 15. Júní 2020

Lilja hefur setið í sveitarstjórn Rangárþings eystra í 10 ár og þar af síðastliðin sex ár sem oddviti.

Lilja tekur við starfinu af Antoni Kára Halldórssyni, en þau hafa leitt meirihlutasamstarf í sveitarstjórn síðastliðin 2 ár og hefur samstarfið gengið einkar vel en samstarssamningur framboðanna gerði ráð fyrir þessum hlutverkaskiptum á þessum tímamótum.

Hér á myndinni má sjá hlutverkaskipti Lilju og Antons Kára sem fram fóru á 268. fundi sveitarstjórnar í gær en þar var Anton Kári kjörinn oddviti Sveitarstjórnar Rangárþings eystra og Elín Fríða Sigurðardóttir, varaoddviti.

Nýir fulltrúar í byggðarráði eru:

Rafn Bergsson

Anton Kári Halldórsson og

Christiane L. Bahner