Menningarnefnd Rangárþings eystra óskar eftir tilnefningum frá íbúum sveitarfélagsins um sveitarlistamann Rangárþings eystra 2020.

Til greina koma allir þeir íbúar sveitarfélagsins sem stunda listir af einhverju tagi.

 

Viðurkenning fyrir Sveitarlistamann Rangárþings eystra verður veitt í 7. sinn í ár.

 

Tilnefningar óskast sendar á netfangið arnylara@hvolsvollur.is fyrir 14. ágúst nk.