Menningarnefnd Rangárþings Eystra óskar eftir tilnefningum frá íbúum sveitarfélagsins um sveitarlistamann Rangárþings Eystra.

Til greina koma allir þeir íbúar sveitarfélagsins sem stunda listir af einhverju tagi.

Eina skilyrðið er að viðkomandi sé með lögheimili í sveitarfélaginu.

Tilnefningar sendist á netfangið menning@hvolsvollur.is eða á skrifstofu sveitarfélagsins merkt ,,sveitarlistamaður“. 

Tilnefningar skulu berast eigi síðar en 24. ágúst.


Menningarnefnd