Markaðs- og menningarnefnd Rangárþings eystra óskar eftir tilnefningum frá íbúum sveitarfélagsins um sveitarlistamann Rangárþings eystra 2022. 

Til greina koma allir þeir íbúar sveitarfélagsins sem stunda listir af einhverju tagi.

Viðurkenning fyrir Sveitarlistamann Rangárþings eystra verður veitt í 9. sinn í ár á Kjötsúpuhátíðinni þann 27. ágúst nk.

Tilnefningar óskast sendar á netfangið arnylara@hvolsvollur.is fyrir 21. ágúst nk.