Minnismerki um Óskar Sigurjónsson, frumkvöðul og einn stofnenda Austurleiðar, var settur upp í Húsadal í Þórsmörk sl. haust. Sveitarfélagið hefur nú gefið bekk sem settur hefur verið upp við hlið minnismerkisins þar sem fólk getur hvílt lúin bein og notið náttúrufegurðarinnar. Jón Hermannsson og fjölskylda tóku það að sér að festa niður bekkinn.

Það var fjölskylda Óskars og gamlir starfsmenn Austurleiðar sem höfðu veg og vanda að uppsetningu minnismerkisins. 

Á meðfylgjandi myndum sem Bergrún Gyða Óladóttir tók má sjá Jón, Erlu Guðfinnu, dóttur hans, og barnabörnin Jón og Bergrúnu Ágústsbörn, þegar bekkurinn var settur upp.