Sveitabúðin UNA opnaði um s.l helgi í bragganum í miðbæ Hvolsvallar. Í búðinni er að finna fallegar vörur úr héraði og má þar nefna m.a. vörur úr ull, fjölbreyttar gjafavörur og matur úr héraði. Þá er einnig hægt að fá gott kaffi og bakkelsi. Það er Valborg Jónsdóttir og fjölskylda sem reka verslunina.
Á myndinni er Ísólfur G. Pálmason sem færði þeim systrum Valborgu og Hildi Jónsdætrum blóm á opnunardeginum.