Kjötsúpuhátíðin verður haldin 29. - 30. ágúst nk. og einn af föstum liðum hátíðarinnar er súpuröltið á föstudagskvöldinu. Þá hafa nokkrir íbúar á Hvolsvelli tekið sig til og boðið til súpu.  Þessi dagskrárliður hefur sett mikinn svip á kjötsúpuhátíðina og verður æ vinsælli. Eins og í fyrra verða súpustaðir vel auglýstir svo enginn ætti að missa af gómsætu súpusmakki.

Þeir sem vilja bjóða upp á súpur eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig á netfangið arnylara@hvolsvollur.is eða í síma 488-4200, fyrir þriðjudaginn 26. ágúst