Námskeið á vegum Kötlu jarðvangs

Snævarr Guðmundsson náttúrulandfræðingur og sérfræðingur á Náttúrustofu Suðausturlands fjallar um norðurljós, m.a. um sögulega norðurljósaatburði, fornar tilgátur um norðurljós, samspil sólar og sólvinda við segulsvið jarðar auk tíðni norðurljósa og tengsl þeirra við virkni sólar. Í lokin verður fjallað um nokkur gagnleg atriði varðandi norðurljósaskoðun. Snævarr mun halda erindi sitt á Kirkjubæjarklaustri og senda út með fjarfundarbúnaði til Víkur, Hvolsvallar og Selfoss.
Nánari upplýsingar  í síma 8570634 (Rannveig) eða á netföngin rannveig@katlageopark.is ogjonabjork@katlageopark.is
Skráning á heimasíðu Fræðslunetsins, www.fraedslunet.is, í síma 560-2038 (Steinunn Ósk) eða á steinunnosk@fraedslunet.is til og með þriðjudagisins 12. Nóv.

Tími: 12. og 20. nóvember kl. 20-22 
Staður: Fjarfundur og staðnám
Verð: 3.000
Leiðbeinandi: Snævarr Guðmundsson


Kristín Hermannsdóttir veðurfræðingur og forstöðumaður á Náttúrstofu Suðausturlands fjallar um staðbundið veður á svæðinu, ný og gömul veðurmet og fleira. Kristín mun kenna frá Kirkjubæjarklaustri og senda út með fjarfndarbúnaði til Víkur, Hvolsvallar og Selfoss
 
Nánari upplýsingar  í síma 8570634 (Rannveig) eða á netföngin rannveig@katlageopark.is ogjonabjork@katlageopark.is
Skráning á heimasíðu Fræðslunetsins, www.fraedslunet.is, í síma 560-2038 (Steinunn Ósk) eða á steinunnosk@fraedslunet.is fyrir mánudaginn 25. Nóv.


Tími: 25. Nóvember kl 20-22
Staður: Fjarfundur og staðnám
Verð: 1.500.-
Leiðbeinandi: Kristín Hermannsdóttir