ÁGÚST SIGURÐSSON, sveitarstjóri Rangárþings ytra, ÍSÓLFUR GYLFI PÁLMASON, sveitarstjóri Rangárþings eystra OG BJÖRGVIN G. SIGURÐSSON, sveitarstjóri Ásahrepps skrifa grein um landsmótahald sem birtist meðal annars í Fréttablaðinu í dag:

 
Landsmót hestamanna fara fram annað hvert ár og eru á meðal mestu viðburða mannlífs og íþrótta í landinu öllu. Staða íslenska hestsins er einstök. Gripurinn er annálaður og hylltur víða um lönd. Enda framfarir í hrossarækt og sýningum síðustu áratuga hreint afrek sem hefur tryggt hestinum okkar sterka stöðu til langrar framtíðar.


Landsmótahald er mikið verk og keppast nokkur svæði um að fá mótin til sín í hvert sinn. Skiljanlega, enda fylgir mótahaldinu mikil uppbygging og umsvif á mörgum sviðum. Hvert svæði hefur fjölmargt til síns ágætis og um tíma leit út fyrir sátt um að mótin yrðu haldin til skiptis sunnan heiða og norðan, á Vindheimamelum í Skagafirði og á Gaddstaðaflötum á Hellu. Þannig væri hægt að byggja upp öflug svæði sem gætu gengið að því vísu í áætlunum sínum hvenær næsta mót færi fram á svæðinu.


Þessu breytti sú ákvörðun stjórnar Landssambands hestamanna að halda mótið í Víðidalnum í Reykjavík fyrir tveimur árum. Nú er þeim sjónarmiðum teflt fram í grein í Fréttablaðinu í vikunni af þeim Gunnari Arnarsyni og Kristbjörgu Eyvindardóttur að mótunum skuli fundinn varanlegur staður í Víðidalnum, og margar ágætar ástæður tíndar til málinu til stuðnings.


Engar brigður skulu af okkur bornar á að sómi sé af mótahaldi á höfuðborgarsvæðinu, nema síður sé. Þar er allt til alls og fjölmenni borgarinnar á bak við. Hins vegar vaknar spurningin: þarf allt að sogast til Reykjavíkur? Þarf líka að fara með Landsmótið þangað eftir áratuga vel heppnað mótahald úti á landi sem hefur getið af sér mikla uppbyggingu t.d. á Gaddstaðaflötum á Hellu sem öll hestamannafélögin á Suðurlandi, utan eitt, standa að og eiga? 

 
Fráleit nálgun

 
Nei, er okkar svar við því. Það er fráleit nálgun og ákvörðun um það væri afleit. Fjölmennustu mótin eru haldin á Gaddstaðaflötum á Hellu og þau mót skila ávallt hagnaði. Þá er búið að byggja upp prýðilega aðstöðu á svæðinu og stórhuga áætlanir uppi um að bæta hana enn frekar. 

 

Hesthúspláss er í nágrenninu fyrir öll keppnishross eins og sýndi sig í sumar þegar ágangsveður varð tilþess að öll hrossin voru hýst. Hótel og gistihús eru á næsta leiti, enda iðar allt í kringum ferðaþjónustu á svæðinu, auk þess sem fjöldi kraftmikilla hestabúgarða er allt í kring um Gaddstaðaflatir.


Svæðið á Hellu hefur allt upp á að bjóða í miðri mekku íslenskrar hrossaræktar. Um það er mikil samstaða í héraðinu öllu að standa dyggilega við bakið á landsmótssvæðinu á Gaddstaðaflötum, enda skiptir mótahaldið miklu fyrir Suðurlandið allt. 

 

Við skorum á stjórn Landssambands hestamanna að halda áfram að finna landsmótum hestamanna stað úti á landi, enda hefur höfuðborgin upp á fjöldamargt annað að bjóða þó Landsmót hestamanna bætist ekki líka við í flóru borgarlífsins. Það skiptir hins vegar okkar byggðir miklu máli að halda glæsileg landsmót með reglulegu millibili, greininni og héraðinu öllu til mikils framdráttar.