Rangárþing eystra auglýsir lausan til umsóknar skólaakstur við Hvolsskóla. Akstursleiðin er breytileg eftir notkun og þörf. Í dag liggur leiðin að m.a. um Vestur-Landeyjar.

Skólabílstjóri þarf að hafa öll tilskilin réttindi til aksturs farþega og bifreið sem notuð verður skal vera í fullkomnu ástandi. Viðkomandi þarf að vera reglusamur, stundvís og þjónustulipur og hann þarf að hafa hreint sakavottorð.

Umsóknir þurfa að berast á skrifstofu Rangárþings eystra fyrir 4. ágúst 2022.

Nánari upplýsingar veitir Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri, í síma 488 4200 eða í gegnum netfangið anton@hvolsvollur.is.