Sveitarstjórn Rangárþings eystra, kjörtímabilið 2010 - 2014 hélt sinn síðasta fund á skrifstofu sveitarfélagsins þriðjudaginn 20. maí. Hér fyrir neðan má sjá mynd af fundarmönnum en þau eru frá vinstri: Birkir A Tómasson (varamaður Kristínar Þórðardóttur, Elvar Eyvindarson, Lilja Einarsdóttir, Ísólfur Gylfi Pálmason, Guðlaug Ósk Svansdóttir, Guðmundur Ólafsson og Haukur G. Kristjánsson.