Seljalandsfoss hefur hlotið viðurkenningu frá ferðamálavefnum TripAdvisor sem einn af þeim ferðamannastöðum í heiminum sem fær stöðugt góðar athugasemdir inni á vef þeirra. Þetta er flott viðurkenning sem að sannar að þegar vel er gert á ferðamannastöðum þá er eftir því tekið.

TripAdvisor er einn af stærstu ferðamiðlum heims með yfir 100 milljón notendur. Á síðunni gefa ferðalangar stöðum, afþreyingu, hótelum og fl. einkunn sem aðrir ferðamenn geta svo nýtt sér.

Hérna er síða Seljalandsfoss á vef TripAdvisor