Sameining samþykkt af meirihluta íbúa í fjórum af fimm sveitarfélögum

Á laugardag var kosið um sameiningu Ásahrepps, Skaftárhrepps, Mýrdalshrepps, Rangárþings ytra og Rangárþings eystra. Tillagan var samþykkt af meirihluta íbúa í fjórum sveitarfélögum, en felld með afgerandi meirihluta í fámennasta sveitarfélaginu, Ásahreppi. Eflaust velta margir fyrir sér hvaða þýðingu niðurstöður kosninganna hafa og hvað tekur við.

Þegar kosið er um sameiningu sveitarfélaga ræður einfaldur meirihluti greiddra atkvæða niðurstöðunni í hverju sveitarfélagi og er hún bindandi fyrir sveitarstjórn. Ef tillögu er hafnað í einhverju sveitarfélaganna, líkt og gerðist í Ásahreppi er málinu þar með lokið fyrir íbúa þess sveitarfélags.

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum er sveitarstjórnum þeirra sveitarfélaga, þar sem tillagan er samþykkt, heimilt að ákveða að sameinast án þeirra sveitarfélaga þar sem tillögunni er hafnað. Sveitarstjórnirnar fimm höfðu lýst því yfir fyrir kosningar að þær myndu ekki nýta þessa heimild. Vilji sveitarstjórnirnar skoða aðra sameiningarkosti þarf því að koma fram ný tillaga eða tillögur um sameiningarviðræður og gefa íbúum tækifæri til að kjósa að nýju.

,,Samstarfsnefndin mun funda í vikunni og ræða næstu skref. Meirihluti kjósenda í fjórum af fimm sveitarfélögum eru samþykkir því að sveitarfélögin sameinist. Einn valmöguleikinn hlýtur að vera að kosið verði aftur í þeim fjórum sveitarfélögum sem samþykktu og kannað hvort íbúar vilji að sameiningin gangi í gegn. Það gæti gerst tiltölulega hratt, t.d. í desember eða janúar.“ Segir Anton Kári Halldórsson formaður samstarfsnefndar.