Síðastliðin ár hefur Rangárþing eystra séð um slátt fyrir elli- og örorkulífeyrisþega í sveitarfélaginu. Í október 2021 voru reglur um sláttinn samþykktar í sveitarstjórn en sveitarfélagið vinnur nú að því að setja upp reglur og verkferla fyrir hin ýmsu verkefni.

Reglur um garðslátt

fyrir ellilífeyris- og örorkulífeyrisþega

1.gr

Markmið

Markmið með þjónustunni er að aðstoða ellilífeyris- og örorkulífeyrisþega sem eru með 75% örorku og ekki geta hjálparlaust hirt lóðir sínar.

 

2.gr

Réttur til nýtingu þjónustu

Rétt til nýtingu þjónustunnar eiga ellilífeyris- og örorkulífeyrisþegar með lögheimili í Rangárþingi eystra, sem hafa fasta búsetu og lögheimli í íbúðarhúsnæðinu þar sem þjónustunnar er óskað. Þjónustan er eingöngu veitt þar sem allir heimilismenn eru ellilífeyris- eða örorkulífeyrisþegar.

3.gr

Þjónustulýsing

Þjónusta er veitt allt að þrisvar sinnum á tímabilinu 1. júní til 20. ágúst ár hvert. Þjónusta felst í því að grasflatir innan skilgreindra lóðarmarka (þó að hámarki 1000 m2) eru slegnar og garðúrgangur sem fellur til við slátt er hirtur. Ekki er boðið uppá önnur garðyrkjustörf. Garðflatir skulu vera aðgengilegar fyrir slátt. Ef um fjöleignarhúsi er að ræða er garðurinn sleginn í hlutfalli við eignarhlut viðkomandi. Þ.e. ef eignarhluturinn er 1/3 af húsinu þá á viðkomandi rétt á garðslætti einu sinni á fyrrgreindu tímabili.

 

4.gr

Stjórn og yfirumsjón

Beiðni um slátt skal berast skrifstofu Rangárþings eystra s: 488-4200 eða á netfangið hvolsvollur@hvolsvollur.is. Áhaldahús ber ábyrgð á skipulagningu og framkvæmd þjónustunnar.

 

5.gr

Gjaldskrá

Þjónustan er ellilífeyris- og örorkulífeyrisþegum að kostnaðarlausu.