Rangárþing eystra leitar að áhugasömum einstaklingum í starf húsvarðar í félagsheimilinu Goðalandi í Fljótshlíð
Starf húsvarðar er hlutastarf og vinnutími er óreglulegur og fer eftir starfsemi í félagsheimilunum hverju sinni. 
Í starfinu felst m.a.: 

Umsjón og eftirlit með húnæði og húsbúnaði.
Undirbúningur fyrir fundi og annan mannfagnað í samvinnu við þá sem panta húsin.
Innheimta leigugjalds í samvinnu við skrifstofu sveitarfélagsins.
Þrif og smávægilegt viðhald
Eftirlit með notkun á raforku til lýsingar og upphitunar.
Gerð gistiskýrslna

Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Rangárþings eystra, Hlíðarvegi 16, Hvolsvelli, og áwww.hvolsvollur.is/stjornsysla/eydublod/


Umsóknarfrestur er til 20. nóvember og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf í upphafi nýs árs. 
Upplýsingar gefur Ágúst Ingi Ólafsson, skrifstofustjóri sími: 488-4200.
Sveitarstjóri Rangárþings eystra