Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði var haldin í Hvolnum Hvolsvelli um síðast liðna helgi. Frábær þátttaka var en um 100 manns víðs vegar af að landinu á aldrinum 16-25 ára sóttu ráðstefnuna sem þótti takast vel til.

Þema ráðstefnunnar að þessu sinni var ungt fólk og fjölmiðlar. Ungmennafélag Íslands stóð fyrir ráðstefnunni, hefur ávallt lagt áherslu á lýðræðislega þátttöku ungs fólks og var vel vandað til dagskrár ráðstefnunnar. Þetta er í þriðja skipti sem þessi ráðstefna er haldin.

Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, setti ráðstefnuna og forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson ávarpaði síðan þátttakendur. Þátttakendur byrjuðu að fá kynningu um fjölmiðla, mannréttindi og hópefli og völdu sér síðan vinnustofur í framhaldi af því.

Frekari upplýsingar um ráðstefnuna má finna inn á vef UMFÍ www.umfi.is.

Myndir frá ráðstefnunni má finna inn á myndasafninu. Myndirnar voru teknar af Magnúsi Hlyni Hreiðarssyni.