Punktamót Íþr.fél Dímonar vað haldið að venju á Sumardaginn fyrsta á Hvolsvelli.
Til leiks mættu 25 keppendur sem allir luku keppni. Keppt var í 2. flokki kvenna og karla. Sigurvegari í kvennaflokki var Lára Ívarsdóttir KR, í 2. sæti var Ingibjörg Magnúsdóttir KR og í                                                                             þriðja til fjórða sæti urðu Þuríður Þöll Bjarnadóttir KR og Alexia Kristínardóttir Mixa BH.      


Í Karlaflokki  varð sigurvegari Eiríkur Logi Gunnarsson KR, í öðru sæti varð Guðmundur Halldórsson KR og í þriðja til fjórða sæti urðu Agnes Brynjarsdóttir Víking og Kamil Mocek Víking. Sigurvegararnir í hvorum flokki hlutu auk þess gjafabréf í hestaferð á Njáluslóðir frá Lárusi Ág. Bragasyni , 16 tommu  pizzu í Björkinni á Hvolsvelli og tíu miða sundkort í sundlaugina á Hvolsvelli.      

Mótið tókst í alla staði vel og fóru keppendur glaðir út í sumarið.   

Þökkum öllum þeim sem aðstoðuðu við framkvæmd mótsins. 
Fh. Borðtennisdeildar Dímonar Ólafur Elí og Ásta Laufey