Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Hvolsvelli ákveðið að lýsa yfir óvissustigi við Sólheimajökul.

Undanfarnar vikur haf aðstæður við sporð Sólheimajökuls breyst hratt. Sporður jökulsins gengur nú fram í jökullón og að undanförnu hafa jakar brotnað framanúr jökulsporðinum og fallið í lónið. Við það að jökullin gengur fram í lónið lyftist sporður jökulsins og nú síðustu daga hefur fremsti hluti sporðsins lyfst um 1,5 metra, þá hafa heyrst brestir í jöklinum í dag.

Lokað verður fyrir umferð bíla niður á bílastæðið sem er næst jökullóninu. Ferðamönnum er bent á að fara ekki fram á flata hluta jökulsporðsins því ekki er ljóst hvort hann getur brotnað framan af jöklinum í hluta eða heild. Ef stærri stykki brotna framan af jöklinum ryðja þau frá sér vatni og það getur valdið flóðbylgju á flatlendinu við jökullónið.

Óvissustigi verður haldið að minnsta kosti fram í vikuna eða þar til sérfræðingar hafa metið aðstæður á vettvangi og afstaða verið tekin til niðurstaðna þeirra.

Mynd af Sólheimajökli frá 25. júlí 2014. Á myndinni má sjá hvernig fremsti hluti jökulsins brettist upp. Ekki er talið óhætt að fara fram á flata eða uppbretta hluta jökulsporðsins. Mynd: Ágúst Gunnar Gylfason