Opið er fyrir unglinga fædda 2006 - 2009 til skráningar í vinnuskóla Rangárþings eystra fyrir sumarið 2022 til 25 maí n.k.. Starfstími vinnuskólans er frá 1. júní til 29. júlí. Vinnutími er frá kl. 9:00 – 16:00 alla virka daga. 

Unglingar fæddir 2009 vinna ýmist frá 9:00 – 12:00 eða 13:00 – 16:00. 

Umsóknareyðublöð eru hèr á heimasíðu Rangárþings eystra og berast á netfangið gudrunbjork@hvolsvollur.is 

Fundað verður með umsækjendum og foreldrum þeirra í Hvolnum mánudaginn 30. maí  kl.:18:00. Á fundinum verður farið yfir starfið, skyldur og réttindi ungmenna. Æskilegt er að allir mæti.

Guðrún Björk Benediktsdóttir 

Umhverfis-og garðyrkjustjóri Rangárþings eystra.