Tilkynning.

Mánudaginn 14.október nk. verður Öldubakka lokað við gatnamótin við Hlíðarveg vegna gatnagerðar. Áætlað er að lokunin standi yfir í þrjá daga . 

Bendum á hjáleið um Nýbýlaveg- Hvolstún að Heilsugæslu og Dvalaheimili. Beðist er velvirðinga á óþægindum sem þetta kann að valda.

F.h. Skipulags- og byggingafulltrúa Rangárþings eystra

Ólafur Rúnarsson.