Þau Eyja Þóra Einarsdóttir og Jóhann Frímannsson á Moldnúpi hafa nú opnað nýtt veitingahús og hótel á Skógum. Veitingasalurinn tekur 60 manns í sæti og hótelið er með 20 gistiherbergjum. Ísólfur Gylfi, sveitarstjóri, heimsótti þau í dag og færði þeim blóm í tilefni af opnuninni.