Ragnheiður Hergeirsdóttir félagsráðgjafi frá Selfossi hefur verið ráðin nýr félagsmálastjóri hjá Félagsþjónustu Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu. Gengið var frá ráðningunni á fundi stjórnar Félagsþjónustunnar í gær 5. janúar á Hvolsvelli. 

Félagsþjónustan er samstarfsverkefni Ásahrepps, Rangárþings ytra, Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps. Ragnheiður tekur við starfinu nú  í byrjun janúar af Álfhildi Hallgrímsdóttur sem hefur látið af störfum. Um leið og Ragnheiður er boðin velkomin til starfa er Álfhildi Hallgrímsdóttur þakkað fyrir vel unnin störf.