Þann 2. janúar hófu nýir húsverðir störf í félagsheimilinum Goðalandi í Fljótshlíð og á Heimalandi undir Eyjafjöllum. Þau Ágúst Jensson og Oddný Steina Valsdóttir tóku við í Goðalandi og Ársæll Hauksson og Þorgerður Guðmundsdóttir á Heimalandi. Eru nýir húsverðir boðnir velkomnir til starfa

Fráfarandi húsvörðum, þeim Sigurði Eggertssyni og Kristrúnu Gísladóttur í Goðalandi og Óla Kristni Ottósyni á Heimalandi, eru þökkuð góð störf.

Pantanir á öllum félagsheimilum í sveitarfélaginu fara fram á skrifstofu Rangárþings eystra í síma 488 4200