Njálurefillinn er heimsóttur í nýrri sjónvarpsseríu í Bandaríkjunum sem ber nafnið Destination Craft with Jim West. Í hverjum þætti heimsækir Jim West 1 land ásamt hópi af áhugafólki um ýmiskonar handverk. Í þættinum um Ísland kemur hópurinn víða við og þar á meðal í Sögusetrinu á Hvolsvelli til að sauma í Njálurefilinn.

Hér má sjá brot úr þættinum en þeir eru sýndir í bandarísku sjónvarpi. Við vonum að hægt verði að horfa á þáttinn frá Íslandi á vefnum sem allra fyrst.