Nína Sæmundsson og Hafmeyjan
Nína Sæmundsson og Hafmeyjan

Jónína Sæmundsdóttir, eða Nína Sæmundsson eins og hún kallaði sig, fæddist að Nikulásarhúsum, næst við bæinn Hlíðarenda í Fljótshlíð, árið 1892 og var yngst 15 systkina, Foreldrar hennar voru Sæmundur Guðmundsson og Þórunn Gunnlaugsdóttir, ábúendur að Nikulásarhúsum.

Nína lést árið 1965 og er minningarreitur um hana rétt innan við Hlíðarenda. Nína er helst þekkt sem myndhöggvari og lærði hún á Konunglegu listaakademíunni í Kaupmannahöfn, í París og á Ítalíu. Árið 1926 fór Nína til Bandaríkjanna og bjó þar að mestu síðan en hélt ætíð íslenskum ríkisborgararétti sínum.

Hafmeyjan er frá árinu 1944 og er fyrirmynd þeirrar sem komið var fyrir í Tjörninni í Reykjavík í ágúst 1959 og svo sprengd í loft upp á nýársnótt 1960. Mörg önnur þekkt verk eru til eftir Nínu svo sem „Móðurást“ sem er við Lækjargötu í Reykjavík.

Það mun vera fyrsta sjálfsæða listaverkið sem sett var upp á opinberum vettvangi hér á landi, án þess að vera minnismerki. Verkið var unnið erlendis og hlaut Nína fyrstu verðlaun fyrir það í keppni sem rösklega 1000 listamenn tóku þátt í.

Annað verk Nínu, „Afrekshugur“, höggmynd af vængjaðri veru, er yfir anddyri Waldorf Astoria hótelsins í New York borg. Samkeppni fór fram árið 1931 um gerð listaverks fyrir hótelið og bar Nína sigur úr býtum en þátttakendur í keppninni voru um 400. Enn fleiri verk eftir Nínu Sæmundsson er að finna bæði erlendis og hér á landi, m.a. í Listasafni Íslands, að Eiríksstöðum í Haukadal vestur og við Nonna-safnið á Akureyri.

Frumgerð Hafmeyju Nínu Sæmundsson er nú í láni hjá Rangárþingi eystra og er staðsett á skrifstofu sveitarfélagsins. Hafmeyjan fór á uppboð hjá Gallerí Fold árið 2009 en seldist ekki þar. Nokkur tilboð komu í styttuna en verðið sem seljandinn hafði sett kom ekki.  Haraldur Sturlaugsson keypti styttuna eftir uppboðið og er eigandi hennar í dag. Hann segir ástæðuna fyrir kaupunum vara þá að honum þætti vænt um allar stúlkur í Fljótshlíðinni og vildi ekki að hún væri munaðarlaus.

Við hvetjum fólk eindregið til að koma á skrifstofu sveitarfélagsins og berja listaverk Nínu augum.

Anton Kári Halldórsson tekur við Hafmeyjunni frá Haraldi Sturlaugssyni

Anton Kári Halldórsson tekur við Hafmeyjunni frá Haraldi Sturlaugssyni