Námskeið fyrir eldri borgara verður haldið mánudaginn 19. Janúar klukkan 13:30 – 15:30 í Menningarsalnum, Dynskálum 8 á Hellu.

Fyrirlesari er Unnur Þormóðsdóttir, Hjúkrunarstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.
Á námskeiðinu mun Unnur m.a. fjalla um: Vistunarmat,  hvíldarinnlagnir og hjúkrunarrými. 
Þeir sem standa að námskeiðinu vonast til að sjá sem flesta.
Allir sem láta sig málefni eldri borgara varða eru velkomnir.

Þjónustuhópur aldraðra
Félags – og skólaþjónusta Rangárvalla – og Vestur Skaftafellssýslu
Félag eldri borgara í Rangárvallasýslu
Heilsugæsla Rangárþings
Dvalar – og hjúkrunarheimilin Lundur og Kirkjuhvoll