Vísinda- og rannsóknarsjóður Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um náms- og rannsóknarstyrk fyrir árið 2020. Styrkurinn nemur 1.600.000 kr.

Styrkurinn er ætlaður námsfólki sem vinnur að rannsóknarverkefni til lokaprófs á háskólastigi. Verkefnið skal tengjast Suðurlandi og þjóna ótvíræðum atvinnu- og/eða fræðilegum tilgangi fyrir Suðurland eða hluta Suðurlands.

Styrkumsóknir sendist til eyjolfur@fraedslunet.is eða sigurdur@hfsu.is Umsóknarfrestur er til 9. nóvember næstkomandi.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Háskólafélags Suðurlands