Myndirnar sem hér eru meðfylgjandi tók Erla Berglind Sigurðardóttir
Vegalengdir
21 km, 13 km og 5,3 km. Öllum er þó velkomið að slást í hópinn hvar sem er og velja þannig þá vegalengd sem hentar hverjum og einum.
Nánar má sjá um viðburðinn á facebook og hér á heimasíðu sveitarfélagsins
Hlaupaleiðir
21 km - Lagt er af stað frá Leikskólanum Örk á Hvolsvelli. Hlaupið upp hjá Sólheimum, hjá Lynghaga, Hjarðartúni, Miðtúni og Akri, svo niður hjá Nýbýlavegi og þaðan götur þræddar (sjá kort). Haldið áfram inn Fljótshlíðarveginn alla leið að Hótel Fljótshlíð, Smáratúni.
13 km - Hlaupið frá Leikskólanum Örk á Hvolsvelli að Hótel Fljótshlíð, Smáratúni.
5,3 km - Hlaupið er frá skógræktarstöðinni á Tumastöðum að Hótel Fljótshlíð, Smáratúni.
Drykkjarstöðvar eru á leiðinni.
Skráning
Gott að skrá sig á Facebooksíðu Naflahlaupsins með því að skrá sig „attending". Facebooksíða hlaupsins er Naflahlaupið 2013.
Þáttökugjald er 1000 krónur og lagt er inn á reikning Naflahlaupsins 0182 - 05 - 60512. Kt. 260787-2929 Í athugasemdum á að vera nafn, bolastærð keppanda og kílómetrar.
Þeir sem vilja fá boli verða að skrá sig og borga þáttökugjald fyrir 14. júní.
Dæmi: Jón Jónsson - L - 21 km
Flottir vinningar eru í boði og hressing við endamarkið í Hótel Fljótshlíð.
Áheit
Eins og síðast er hægt að skora á hlaupara og heita á þá.
2010 rann ágóðinn til Leikskólans Arkar.
2011 rann ágóðinn í starfsemi sjúkraflutinga á Hvolsvelli.
2012 rann ágóðinn til unglingadeildar Dagrenningar.
2013 rann ágóðinn til Grunnskólans á Hvolsvelli.
Í ár mun ágóðinn renna til Elliheimilisins Kirkjuhvol.
Hver hlaupari ber ábyrgð á að nálgast áheit sín til áskoranda og skila til framkvæmdastjóra hlaupsins sem koma þeim í réttar hendur að hlaupi loknu.
Nánari upplýsingar
Framkvæmdastjórar hlaupsins eru Jón Gísli Harðarson og Ómar Smári Jónsson.
Nánari upplýsingar veita þeir félagar í síma 864 2288 (Jón Gísli) og 848 1466 (Ómar Smári).