Miðvikudaginn næstkomandi (28.maí) mun Kristján Aðalsteinsson verkefnastjóri ferðaþjónustu hjá N1 kynna verkefni sem fyrirhugað er að hefjist á haustmánuðum í Hlíðarenda, Hvolsvelli.


Verkefnið er samstarfsverkefni N1, Landsbjargar og Markaðsstofu Suðurlands og mun Jónas Guðmundsson, verkefnastjóri slysavarna ferðamanna kynna verkefnið ásamt Kristjáni.

N1 hefur hug á að styðja markvisst við innlenda ferðaþjónustu og er þátttaka ferðaþjónustuaðila lykilatriði í því samhengi.

N1 langar því að bjóða öllum sem áhuga hafa á að kynna sér verkefnið á kynningu í Hlíðarenda næstkomandi miðvikudag klukkan 19:00


Hlökkum til að sjá ykkur.