Í tilefni af Degi íslenskrar tungu lásu nemendur Hvolsskóla Njálu frá upphafi til enda. Er þetta sjöunda árið í röð sem 10. bekkur les Njálu í Hvolsskóla. Þórður Helgason dósent í íslensku við kennaradeild Háskóla Íslands var heiðursgestur að þessu sinni og hrósaði hann nemendum sérstaklega fyrir góðan lestur. Meðal annarra atriða má nefna að 7. bekkur las Gunnarshólma eftir Jónas Hallgrímsson auk þess sem yngri nemendur sungu og lásu ljóð. Einnig lásu nemendur 9. bekkjar ljóð eftir Þórð úr bók hans Þar var ég en þar fjallar hann um dvöl sína í Fljótshlíð, hvert hann var sendur sem ungur drengur. Barnakór Hvolsskóla og Hringurinn, kór eldra borgara í Rangárþingi, sungu á hátíðinni.

Myndir frá deginum má finna á vef Hvolsskóla og hér í myndasafninu.