Mjög góð þátttaka var á námskeiði um moltugerð sem Rangárþing eystra bauð íbúum sínum upp á í gærkvöldi. Auður I. Ottesen garðyrkjufræðingur kenndi fjölmargar aðferðir við moltugerð.  Það var Fræðslunetið á Hvolsvelli sem hélt utan um námskeiðið.