Þetta er í fyrsta sinn sem þessi viðurkenning er veitt og var leitað eftir tilnefningum frá íbúum. Viðurkenningin er veitt þeim einstaklingi, fyrirtæki, stofnun eða félagasamtökum í Rangárþingi eystra sem þykir standa sig afburða vel í að efla samfélagið, þeim sem hafa með gjörðum sínum og framgöngu látið gott af sér leiða og verið öðrum góð fyrirmynd.

Fyrstu Samfélagsviðurkenningu Rangárþings eystra hlýtur Midgard.

Eigendur og starfsfólk hjá Midgard hafa allt frá stofnun fyrirtækisins verið áberandi í samfélaginu okkar. Þau hafa unnið ötullega að því að koma sveitarfélaginu okkar á kortið sem ákjósanlegur ferðamannastaður, bjóða upp á fjölbreyttar ferðir, frábæra gistiaðstöðu og skemmtilega stemningu fyrir sína gesti. Þau einblína á að efla sjálfbærni, vinna að umhverfisvernd og eru frábær fyrirmynd fyrir ferðaþjónustuaðila.

En það sem þau hjá Midgard hafa ekki síður unnið ötullega að er að bæta samfélagið okkar á hvern veg sem þau geta. Midgard er einn af vinsælustu tónleikastöðum landsbyggðarinnar og hafa flestir af þekktustu og vinsælustu tónlistarmönnum landsins verið með tónleika á Midgard. Midgard teymið er ekki síður duglegt að efla tónlistarlífið í heimabyggð, bjóða upp á tónleika eð aðra viðburði þar sem íbúar sveitarfélagsins koma fram. Þegar leitast er eftir þátttöku fyrirtækja í viðburðum sem haldnir eru í sveitarfélaginu þá svarar Midgard nær undantekningarlaust kallinu. Hvort sem það er að bjóða upp á samstarf í formi aðstöðunnar sem þau hafa byggt upp á Dufþaksbraut, má nefna frábært Silent Disco sem haldið var sl. fimmtudag eða leggja til sína sérfræðiþekkingu t.d. þegar lagður var hjólastígur í Tunguskógi.

Vonandi verður þessi viðurkenning hvatning til hópsins að halda áfram á þessari góðu braut sem þau hafa verið á en einnig gott klapp á bakið fyrir allt það sem þau hafa nú þegar lagt til samfélagsins.

Christiane L. Bahner, formaður Markaðs- og menningarnefndar, afhenti Midgards hópnum verðlaunin á Kjötsúpuhátíð. Þau Ólöf Bergrós Jónasdóttir og Valur Freyr Stefánsson, hjálpuðu til við afhendinguna.