Nýbýlavegur; Hvolstún; Gunnarsgerði, Hvolsvelli

Rangárþing eystra auglýsir hér með eftirfarandi lóðir á Hvolsvelli, lausar til úthlutunar. 
Nýbýlavegur 46, undir byggingu fjölbýlishúss á tveimur hæðum, 6-8 íbúðir
Nýbýlavegur 48, undir byggingu raðhúss, 4-5 íbúðir
Hvolstún 14, 25, 27, undir byggingu einbýlishúsa
Hvolstún 19, 21, undir byggingu einbýlishúsa á tveimur hæðum
Gunnarsgerði 4a-4c undir byggingu raðhúss, 3 íbúðir
Gunnarsgerði 8, 9, 10, undir byggingu einbýlishúsa

Umsóknareyðublað, nánari upplýsingar um lóðirnar og skipulagsskilmála má nálgast á heimasíðu Rangárþings eystra www.hvolsvollur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa, Ormsvelli 1, Hvolsvelli, bygg@hvolsvollur.is 
Við úthlutun lóðanna verður farið eftir úthlutunarreglum lóða í Rangárþingi eystra. Umsóknarfrestur er til 31. janúar 2018. Umsóknum skal skilað á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa eða á netfangið bygg@hvolsvollur.is. 

F.h. Rangárþings eystra
Anton Kári Halldórsson
Skipulags- og byggingarfulltrúi