Ljósmyndaklúbburinn 860+ heldur útiljósmyndasýningu fjórða árið í röð  í miðbæ Hvolsvallar.
Sýningin mun standa uppi í allt sumar og eru gestir og gangandi hvattir til að staldra þar við.
Klúbburinn 860+ samanstendur af áhugaljósmyndurum í Rangárþingi Eystra og nágrenni.
Að þessu sinni eru um 20 klúbbmeðlimir með myndir á sýningunni sem er tileinkuð 80 ára afmæli Hvolsvallar.