Í dag hefst Lífshlaupið sem að er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra aldurshópa.

Landsmenn eru hvattir til þess að huga að sinni daglegri hreyfingu og auka hana eins og kostur er þ.e. í frítíma, heimilisverkum, vinnu, skóla og við val á ferðamáta. Í ráðleggingum Embætti landlæknis um hreyfingu er börnum og unglingum ráðlagt að hreyfa sig í minnst 60 mínútur á dag og fullorðnum í minnst 30 mínútur á dag. Nánari upplýsingar um ráðleggingar um hreyfingu má finna hér. 

Lífshlaupið stendur fyrir:

grunnskólakeppni fyrir 15 ára og yngri, tvær vikur í febrúar
framhaldsskólakeppni, fyrir 16 ára og eldri
vinnustaðakeppni, þrjár vikur í febrúar
einstaklingskeppni þar sem allir geta tekið þátt og skráð niður sína daglegu hreyfingu allt árið

Skrá má alla hreyfingu niður ef hún nær minnst 30 mínútum samtals á dag hjá fullorðnum og minnst 60 mínútum samtals á dag hjá börnum og unglingum. Tímanum má skipta upp í nokkur styttri tímabil yfir daginn s.s. 10 til 15 mín í senn.

Nánari upplýsingar um grunnskóla-, framhaldsskóla-, vinnustaða- og einstaklingskeppnina er að finna á heimasíðu Lífshlaupsins

Vinnustaðir, skólar og einstaklingar eru hvattir til að taka þátt og nota þannig tækifærið til að efla líkama og sál með því að hreyfa sig daglega.


Þín heilsa - Þín skemmtun