Leikskólinn Örk óskar eftir starfsmönnum í ræstingar

Um er að ræða 2 störf með 50% starfshlutfall, hægt er að ræsta eftir kl 16:00 alla virka daga.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1 apríl.

Umsóknarfrestur er til 9. mars 2022

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sólbjört Sigríður Gestsdóttir skólastjóri í síma 848-4270. Umsóknir skal senda á ork.leikskolinn.is þar undir upplýsingar og starfsumsókn.