Kvenfélagið Bergþóra kom færandi hendi í Leikskólann Örk þann 10. janúar sl. með þrjá gítara, gítartöskur og önnur hljóðfæri. Kvenfélagið færði leikskólanum einnig bækur um tónlist sem og nokkrar aðrar bækur. Leikskólinn þakkar kærlega þessa höfðinglegu gjöf.

Á myndinni hér fyrir neðan má sjá frá vinstri Gunnhildi Þórunni Jónsdóttur, Jóhönnu Elínu Gunnlaugsdóttur og Bóel Þórisdóttur, fyrir hönd kvenfélagsins, Sólbjörtu Gestsdóttur, leikskólastjóra og Elísabet Hlíðdal, aðstoðarleikskólastjóra.