100% staða aðstoðarleikskólastjóra frá 1. ágúst 2018
Starfssvið: 
Starfar að stjórnun leikskólans við hlið leikskólastjóra og er staðgengill hans. 
Hefur yfirumsjón með skipulagi sérkennslumála skólans og tekur þátt í framkvæmd sérkennslu. 
Starfar samkvæmt starfslýsingu og í samráði við leikskólastjóra.
Menntunarkröfur: 
Leikskólakennaramenntun. Menntun og/eða reynsla á sviði stjórnunar og sérkennslu er æskileg. 

100% stöður deildarstjóra frá 1. ágúst 2018.  
Starfssvið: Starfar samkvæmt starfslýsingu og í samráði við leikskólastjóra.
Menntunarkröfur: Leikskólakennaramenntun. Menntun og/eða reynsla á sviði stjórnunar er æskileg. 

100% stöður leikskólakennara.
Starfssvið: Starfar samkvæmt starfslýsingu og í samráði við leikskólastjóra.
Menntunarkröfur: Leikskólakennaramenntun. Við erum spennt að fá nýtt starfsfólk og því er æskilegt að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Hæfnikröfur starfsmanna: Búa yfir góðri færni í mannlegum samskiptum, hafa góða íslenskukunnáttu, sýna frumkvæði, sveigjanleika, sjálfstæði og metnað fyrir starfi sínu. Þeir þurfa að vera tilbúnir til að vinna að uppeldi og menntun barna í samræmi við námskrá og í nánu samstarfi við stjórnendur. Ekki er verra ef viðkomandi hefur eilítið gaman af lífinu og er brosmildur.

Leikskólinn Örk er 5 deilda leikskóli þar sem starfa rúmlega 100 hressir nemendur og 35 glaðir kennarar og starfsmenn. Uppeldisstefna Arkarinnar byggir á hugmyndafræði hugsmíðahyggju. Hugmyndafræðin felur í sér að börnin séu leitandi og gagnrýnin og tileinki sér þekkingu og skilning með ígrundun, lausnaleit, rökhugsun og að þau læri að nýta sér það í leik og starfi og taka ígrundaðar ákvarðanir sem byggðar eru á þekkingu þeirra og gildismat.

Umsóknarfrestur er til  og með 23. apríl nk. Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um.
Umsóknum skal skila ásamt ferilskrá og meðmælum á heimasíðu leikskólans ork.leikskolinn.is  undir flipanum  - Upplýsingar – Starfsumsóknir. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum FL og FSL við SÍS. Fáist ekki leikskólakennarar er heimilt að ráða aðra í stöðurnar til eins árs. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sólbjört Sigríður Gestsdóttir leikskólastjóri í síma 488 4270 eða með tölvupósti á leikskoli@hvolsvollur.is.