Möguleikhúsið kemur með sýninguna Langafi prakkari í Sögusetrið, laugardaginn 8. nóvember kl. 16:00.


Leiksýningin Langafi prakkari er á efa vinsælasta sýning Möguleikhússins frá upphafi, en verkið hefur nú verið sýnt um 300 sinnum frá því það var frumsýnt árið 1999. Nú heldur Möguleikhúsið enn af stað með sýninguna til að gefa nýrri kynslóð barna kost á að hitta Langafann uppátækjasama ásamt stelpuskottinu henni Önnu.

Sýningin byggir á sögum Sigrúnar Eldjárns um Langafa prakkara sem hafa um árabil notið mikilla vinsælda meðal yngstu lesendanna. Í þessari leikgerð er stuðst við bækurnar Langafi drullumallar og Langafi prakkari.  
 
 
Í leikritinu segir frá lítilli stúlku, Önnu, og langafa hennar. Þó langafi sé blindur og gamall er hann alltaf tilbúinn að taka þátt í einhverjum skemmtilegum uppátækjum með Önnu litlu. Hann passar hana alltaf á daginn þegar pabbi hennar og mamma eru í vinnunni. Þá hefur hann nægan tíma til að sinna henni og þau gera ýmislegt skemmtilegt saman. Þau skoða mannlífið, baka drullukökur, veiða langömmur og fleira. Þetta er enginn venjulegur langafi …