Fyrsta námskeiðið hefst 26. maí - 6. júní, 

Annað námskeiðið er frá 10. júní - 20. júní. 

ef nægur fjöldi fæst á þriðja námskeiðið 
þá verður það haldið frá 23. júní - 4. júlí. 

Námskeiðin eru fyrir börn fædd árin 2009 – 2002. 

Hópunum verður skipt eftir aldri og stefnt er að því að allir iðkendur fái verkefni við hæfi. 
Námskeiðið er frá kl. 9 - 16 en hægt er að fá gæslu frá kl. 8 - 9 og 16 -17 gegn 3.000 kr. greiðslu á viku. Greiðsla fyrir hvert námskeið leggist inn á reikning Frjálsíþróttadeildar Dímonar 

0182- 05- 846, kt.510697-2279, vinsamlegast setjið nafn barns til skýringar á greiðslu ásamt 3.000 krónunum á viku fyrir þá sem kaupa gæsluna.

Börnin þurfa að koma klædd eftir veðri og með nesti fyrir daginn, auk þess að koma með sundföt alla daga.
Umsjónarmenn eru Ólafur elí Magnússon og Þröstur Sigfússon.

Verð fyrir eitt námskeið þ.e. tvær vikur er 16.000, ef foreldri er með fleiri en 
eitt barn á námskeiðinu er veittur 25% systkinaafsláttur af námskeiðsgjaldi 
fyrir seinna barnið, ekki er veittur afsláttur af gæslunni.

Skráningar fara fram á netfanginu olafurorn@hvolsvollur.is 
Þar þarf að koma fram nafn og kennitala barns. Símar foreldra og netföng. 
Ásamt því ef barnið er haldið einhverju ofnæmi, taki inn lyf eða eitthvað annað sem umsjónamenn þurfa að vita um barnið. 

Dagskrá verður birt á dimonsport.is fyrir hvert námskeið í senn.