Leikritið fjallar um Eyju sem hefur lengi átt í baráttu við aukakílóin og er hún leikin af Þórunni Elfu Stefánsdóttur. Í Vodkakúrnum fylgjumst við með samskiptum hennar við ýmsar áhugaverðar persónur í lífi hennar eins og t.d. elskhugann, mjóu systurina, einkaþjálfarann og fleiri. 

Um er að ræða gamanleikrit með örlítið alvarlegum undirtóni þar sem það er skoðun höfundar að megrunarkúrar virki ekki og séu frekar til að fita fólk en hitt.

Þetta leikrit var frumflutt árið 2004 og voru þá leikararnir aðeins tveir, Helga Braga Jónsdóttir og Steinn Ármann Magnússon og varð verkið gríðarlega vinsælt. Þetta er í fyrsta skipti sem verkið er sett upp af áhugamannaleikfélagi og ríkir spenna og eftirvænting í hópnum.



Sýningarnar fara fram í félagsheimilinu Njálsbúð í Vestur-Landeyjum.

Næstu sýningar: 

Frumsýning laugardaginn 12. nóv Kl: 20.00

2. sýning miðvikudaginn 16. nóv Kl: 20.00



3. sýning föstudaginn 18. nóv Kl: 19.00



4. sýning sunnudaginn 20. nóv Kl: 15.00



5. sýning miðvikudaginn 23. nóv Kl: 20.00



7. sýning laugardaginn 26. nóv Kl: 14.00



8. sýning laugardaginn 26. nóv Kl: 18.00 Lokasýning

Miðapantanir eru hjá Guðmundi í Síma: 868-1188, milli 17.00 og 20.00 eða sendið póst á: broi1970@mi.is