Leikfélag Austur-Eyfellinga hlýtur nafnbótina Sveitarlistamaður Rangárþings eystra 2017. Leikfélagið hefur verið í fararbroddi í leiklistarstarfi sveitarfélagsins, sett um stórar sýningar eins og Önnu frá Stóru Borg og Kardemommubæinn ásamt því að vera leiðandi í leiklistarkennslu. Hjá félaginu er starfandi leikhópurinn Glætan þar sem grunnskólabörn koma saman, æfa og sýna leikrit.

Á Kjötsúpuhátíðinni 25. ágúst sl. þá afhenti Helga Guðrún Lárusdóttir verðlaunin fyrir hönd Menningarnefndar og við þeim tók Margrét Tryggvadóttir sem hefur unnið ötult starf í þágu leiklistar.