Framkvæmdastjóri

 

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra.

Leitað er eftir öflugum einstaklingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt og krefjandi starf. Reiknað er með að ráða í starfið í byrjun árs 2022. Starfsstöð er á móttökustöð Sorpstöðvarinnar á Strönd.

 

Helstu verkefni:

  • Hafa umsjón með rekstri og þróun Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
  • Sinna störfum móttökustöðvarinnar á Strönd og grenndarstöðva
  • Hafa umsjón með sorphirðu
  • Hafa umsjón með og sinna rekstri og viðhaldi bifreiða og véla
  • Hafa umsjón með starfsmannamálum
  • Þátttaka í áætlanagerð og eftirfylgni með áætlunum

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi, háskólamenntun ákjósanleg
  • Þekking og reynsla af rekstri og verkefnastjórnun kostur
  • Krafa um almenna tölvukunnáttu og þekkingu á upplýsingatækni
  • Meirapróf skilyrði og vinnuvélaréttindi kostur
  • Þekking á viðhaldi bifreiða og véla
  • Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
  • Skipulagshæfileikar og nákvæm vinnubrögð

 

Hjá Sorpstöð Rangárvallasýslu starfa um 4 starfsmenn í föstu starfi auk 3-4 í hlutastarfi. Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. er byggðasamlag í eigu Rangárþings eystra, Rangárþings ytra og Ásahrepps og þjónustar alla Rangárvallasýslu.

 

Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um stöðuna.

 

Umsóknarfrestur er til 10. desember. Umsókn skal senda með rafrænum hætti á ry@ry.is

Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Nánari upplýsingar veita Hulda Karlsdóttir (hulda@ry.is - 488 7000) og Ágúst Sigurðsson (agust@ry.is – 488 7000)