Laust starf: Leiðbeinandi hjá VISS á Hvolsvelli

VISS, vinnu og hæfingarstöð óskar eftir að ráða leiðbeinenda í 50% stöðu frá 1. ágúst n.k, vinnutími er virka daga frá kl 8 -12.

VISS er vinnustaður fyrir fólk með skerta starfsgetu. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsögn og Sjálfstætt líf. Leiðbeinandinn vinnur samkvæmt lögum 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 auk tengdra reglugerða.

Meginverkefni:

  • Veita persónulegan stuðning, einstaklingsmiðaða og sveigjanlega þjónustu
  • Umsjón verkefna sem unnið er að
  • Efla og styðja sjálfstæði starfsmanns til virkni félagslega og í starfi
  • Veita persónulega aðstoð við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja eftir einstaklingáætlunum og vinnuferlum
  • Skipuleggja og forgangsraða störfum sínum í samráði við viðkomandi yfirmenn

Hæfniskröfur:

  • Reynsla í starfi með fötluðu fólki æskileg og/eða menntun sem nýtist í starfi
  • Leiðtoga og skipulagshæfileikar
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni og góð þjónustulund
  • Almenn tölvukunnátta æskileg

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar veita Gunnsteinn Sigurðsson deildarstjóri VISS á Hvolsvelli, gunnsteinn@felagsmal.is sími 837-3668 og Ragnhildur Jónsdóttir forstöðuþroskaþjálfi VISS, netfang: ragnhildur@arborg.is síma 480-6920 og 899-7254

Rangárþing eystra er heilsueflandi samfélag í stöðugri sókn. Sveitarfélagið leggur ríka áherslu á samvinnu,virðingu og vellíðan á vinnustað.

Öllum umsóknum verður svarað

Umsóknarfrestur er til 19.júní