Kirkjuhvoll, hjúkrunar- og dvalarheimili 
auglýsir eftir sjúkraliða - framtíðarstarf
Helstu verkefni og ábyrgð
Sjúkraliði ber ábyrgð á því að veita persónumiðaða aðstoð við athafnir daglegs lífs á heimili notandans, ráðgjöf, stuðning og framfylgir meðferðaráætlun í samvinnu við aðrar fagstéttir teymisins.
Þróun og þátttaka í þverfaglegu starfi og faglegri uppbyggingu. 
Hæfniskröfur
Sjúkraliðamenntun, íslenskt starfsleyfi
Skipulaghæfni og faglegur metnaður
Góð hæfni og heiðarleiki í mannlegum samskiptum
Áhugi á þróun og uppbyggingu faglegs starfs og teymisvinnu. 
Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi

Nánari upplýsingar veitir Ólöf Guðbjörg hjúkrunarforstjóri og Sólveig Eysteinsdóttirr deildarstjóri  í síma 487-8108 eða á netfangið kirkjuhvoll@hvolsvollur.is 
Kjör – greitt er skv kjarasamningi Sjúkraliðafélags Íslands og Samband íslenskra sveitafélaga.
Umsókn má skila rafrænt á netfangið kirkjuhvoll@hvolsvollur.is  eða koma með hana beint á Kirkjuhvol og þarf að fylgja henni upplýsingar um menntun, fyrri störf og tilgreina meðmælenda.