Laus störf í mötuneyti Rangárþings eystra

Afleysing í eldhúsi

Laus er til umsóknar afleysingarstaða til 31. janúar 2024 í mötuneyti Rangárþings eystra. Um er að ræða 100% starf. Viðkomandi starfar undir stjórn forstöðumanns mötuneytis. Starfsstöðvarnar eru þrjár, Kirkjuhvoll, Hvolsskóli og Leikskólinn Aldan.

Um er að ræða vaktavinnu þar sem unnið er á 8 klst vöktum sem eru morgunvaktir, síðdegisvaktir og helgarvaktir. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst

Menntun og færnikröfur:

  • Ágæt kunnátta í matreiðslu og bakstri.
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
  • Snyrtimennska og rík þjónustulund
  • Frumkvæði og geta til að vinna sjálfstætt
  • Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði

Hlutastarf í eldhúsi

Laust er til umsóknar tímabundið hlutastarf í mötuneyti Rangárþings eystra. Um er að ræða 50% starf. Viðkomandi starfar undir stjórn forstöðumanns mötuneytis. Starfsstöðvarnar eru þrjár, Kirkjuhvoll, Hvolsskóli og Leikskólinn Aldan. Unnið er á virkum dögum frá kl 9:00-13:00. 

 Menntun og færnikröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
  • Snyrtimennska og rík þjónustulund
  • Frumkvæði og geta til að vinna sjálfstætt
  • Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum

 

Helstu verkefni:

Helstu verkefni starfsins eru aðstoð við matreiðslu, framreiðslu, frágang og þrif á þeirri starfsstöð sem við á.

Fylgigögn með umsóknum:

  • Ferilskrá þar sem fram koma upplýsingar um menntun og starfsreynslu
  • Upplýsingar um meðmælendur

Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður mötuneytis á netfanginu bragi@hvolsvollur.is

Umsóknir skulu berast á netfangið bragi@hvolsvollur.is ásamt umbeðnum fylgigögnum.