Gjöf til Kirkjuhvols


Í tilefni af 80 ára afmæli Kvenfélagsins Bergþóru í Vestur-Landeyjum, ákvað kvenfélagið að færa Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Kirkjuhvoli að gjöf 50" Panasonic sjónvarpstæki af fullkomnustu gerð. Er það einlæg von kvenfélagskvenna að gjöfin verði heimilisfólki bæði til gagns og ánægju.

Kvenfélagið færði einnig Hildi Ágústsdóttur frá Klauf í Vestur-Landeyjum gjöf frá kvenfélaginu en hún varð 80 ára þann 13. október sl. Hildur gekk í kvenfélagið 1971 og gengdi formennsku í samtals 24 ár, samfellt frá 1991 - 2009 og áður frá 1982 - 1988. Félagskonur eru þakklátar Hildi fyrir vel unnin störf í gegnum tíðina. 

Á myndinni er; Ólöf Guðbjörg Eggertsdóttir sem veitti sjónvarpinu viðtöku. Með á myndinni eru Bóel Anna Þórisdóttir, formaður Kvenfélagsins Bergþóru , Svanhildur Guðjónsdóttir, gjaldkeri Kvenfélagsins Bergþóru, og Guðjón Ingi Guðlaugsson aðstoðarmaður
r

Á myndinni eru; Hildur Ágústsdóttir, heiðursfélagi, og Svanhildur Guðjónsdóttir